Tag: þrjá ef troðið var

Hansom leiguvagninn ágrip af þróunHansom leiguvagninn ágrip af þróun

0 Comments

Hansom leiguvagninn er hannaður og prófaður hjá Hinckley sem fékk líka einkaleyfi fyrir honum 1834 af Joseph Hansom, arkitekt frá York. Þessi
Hansom stundaði þróun vagnsins í Hincley, í Leicesterskíri á Englandi. Upphaflega var vagninn kallaður Hansom öruggi taxinn. Hann var hannaður með hraða og öryggi í huga, lágur þyngdarpunktur svo hann væri öruggari í beygjum og fyrir horn og jafnvægi milli hests og vagns. Hansom orginal hönnunin var endurbætt af John Chapman verkfræðing (1801-1854) en vagninn hélt þó nafni fyrsta skapara síns.

Þróun heitisins leiguvagn

https://hestvagnasetrid.org/wp-content/uploads/2022/06/Cabriolet.jpgEnska orðið Cab er stytting af Cabriolet sem endurspeglar hönnun vagnsins. Tók við af Hackney Carriage þróaðist svo í farartæki
til leigu, með tilkomu mælisins taximeters sem mældi ferðirnar, sem varð svo enn aftur fyrir breytingu og varð taxicab leiguvagn/bifreið.

Útbreyðsla

https://hestvagnasetrid.org/wp-content/uploads/2022/06/London-taxabilstjorar-Hansom-232x300-1.jpgHansom leiguvagnarnir nutu vaxandi vinsælda vegna hversu fljótir þeir voru í förum og nógu léttir til að vera dregnir af einum hesti sem gerði
túrinn ódýrari en á fjögra hjóla vagni. Hansom ók auðveldlega í gegn um umferðarteppur hestvagna nítjándu aldar. Þegar Hansom var sem vinsælastur voru um 7,500 eintök í notkun og vinsældir þeirra dreifðu sér um borg og bæi Stóra Bretlands og líka til Írlands, Dublinar t.d. svo eining um Evrópu sérstaklega til Parísar, Berlínar og St Pétursborgar. Svo voru Hansom vagnarnir líka kynntir í USA á nítjándu öld en enduðu með að vera vinsælastir í New York City.

Hönnunin

https://hestvagnasetrid.org/wp-content/uploads/2022/06/Hansom-i-ferd-300x275-1.jpgLeiguvagn sem var kallaður flugan the fly, rúmaði tvo farþega (þrjá ef troðið var) og kúskurinn (vagnstjórinn) sat á fjaðrandi sæti aftan á farartækinu. Farþegarnir gátu kallað skipanir til kúsksins gegn um lúgu á þakinu aftanverðu; svo gátu þeir borgaðfargjaldið líka í gegn um sömu lúgu, sem svo læst hurðum framan á vagninum með útbúnaði. Á sumum Hansom vögnunum gátu kúskarnir stjórnað með sérstökum búnaði jafnvægi vagnsins til að minnka álag á hestanna. Farþegarnir voru náttúrulega í skjóli gagnvart veðrum og vindi í vagnhúsinu, en fætur ásamt fötum gátu verið varin gegn drulluskvettum með litlum hliðarfeldum hurðum sem gaf þeim skjól. Seinni útgáfur Hansom vagnanna voru útbúnar með gluggum ofarlega og yfir dyrunum. Svo var bretti/hlíf (Dashboard) til varnar farþegunum vegna grjótkasts frá hófum hestanna.

https://hestvagnasetrid.org/wp-content/uploads/2022/06/Hansom-cab-300x245-1.jpgHeimsfrægur á Íslandi

https://hestvagnasetrid.org/wp-content/uploads/2022/06/Sherlock-Holmes-og-Hansom.jpgVið Íslendingar þekkjum vel útlit þessara farartækja eftir að við kynntumst Sherlock Holmes á skjánum. Hann og Watson eru stöðugt á ferð og flugi í Hansom hestvagni um London og allar trissur á því svæði í frægum sjónvarpsþáttum og kvikmyndum, þannig að þessi vagn varð á meðal frægustu hestvagna heims, held ég að megi fullyrða með nokkru öryggi.

https://hestvagnasetrid.org/wp-content/uploads/2022/06/Syn-a-arid-2000-hja-Frokkum-m-Hansom-sem-flugvagn.jpgHeimildir: https://en.wikipedia.org/wiki/Hansom_cab
Tók saman og Þýddi Friðrik Kjartansson

Yfirlestur/Próförk: Yfirlestur.is