Hestvagnasetrið.org uncategorized Líkkistu leiguvagninn

Líkkistu leiguvagninn

0 Comments
https://hestvagnasetrid.org/wp-content/uploads/2022/07/Likkistu-vagninn-1-1.jpg
Líkkistu vagninn

Önnur nýjungin var að kúsksætið var hliðarsett!
Til heiðurs hennar hátignar á afmælisdegi hennar var kynntur nýr leiguvagn 23. apríl 1823. Hr. Davies sem hafði hannað Pæton vagninn smíðaði 12 þannig vagna sem voru kynntir þennan dag í apríl . Þessir leiguvagnar voru byggðir fyrir tvo farþega en kúskurinn var staðsettur til hliðar. Með vagninum var fargjaldsskráin svo hættan væri minni á að farþegarnir væru látnir greiða rangt verð. Farareyrir var þriðjungi minni en hjá Hacney leiguvögnunum. Kom hugmyndin að gulu leigubílunum í New York þaðan þarna?

Nýju vagnarnir voru gulir að lit með einn einkar sérstakan stíl sem íbúar voru mjög hissa á. Eins og áður sagði var kúskurinn til hliða við yfirbygginguna og utan við húddi Með þessu var meiri séns á að farþegarnir nytu þess að vera ótruflaðir og einangrun þeirra var tryggð; sérstaklega ef tjöldin að framan voru dregin fyrir. Yfirbyggingin líktist helst líkkistu sem stendur upp á endann og fékk þannig viðurnefnið Líkkystuvagninn (coffin-cab) og var ýmislegt skemmtilegt sem gárungarnir létu frá sér fara í bundnu máli og texta ásamt frásögnum sér og öðrum til skemmtunar.

Heimild: Carriage & coaches: theyr history & their evolution bls 245-6 úgefin 1912
Tók saman og þýddi textan: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: Yfirlestur.is