Hestvagnasetrið.org uncategorized Konungsvagninn sem Friðrik VIII vildi ekki nota?

Konungsvagninn sem Friðrik VIII vildi ekki nota?

0 Comments

Friðrik VIII vildi ríða fremstur í fylgdarliðinu til að heilsa fólki sem var á vegi hans fyrstur af öllum. Munnmælasaga sem fylgdi vagninum.

Hugsanlegur Konungsvagninn er af gerðinni Phæton, og voru þeir smíðaðir í mörgum útfærslum. Þessi útfærsla er að öllum líkindum Ensk að uppruna (byggt á járnverkinu á fimmta hjólinu og hönnun yfirbyggingar) Vefsíðueigandi er ekki viss um hversu mikil verðmæti liggja í að eiga þennan grip svona heillegan sem minjagrip úr Konungskomunni. En vefsíðueigandi veit hins vegar að eigandi hans veit hversu mikið verðmæti hann er með í sínum fórum. Myndin er fengin að láni frá Þorkeli Hjaltasyni.

Sagan sem fylgir vagninum: Friðrik settist aldrei upp í þennan vagn enda góður reiðmaður og vildi ekkert með vagninn hafa að gera.Konungur reið gjarnan fremst í flokki, því að hann vildi heilsa fólki fyrstur
og taka það tali ef honum sýndist svo. Vagninn eftirlét hann Carl Locher, sem var málari í fylgdarliði hans og var orðinn nokkuð aldraður og þungfær. Eitt sinn var vagninn dreginn tómur og var þá konungi sagt að Carl væri sjálfur ríðandi. Leitaði konungur þá Carl uppi til að spyrja hann hvernig hann hefði komist á bak!!

Vagninn er á gúmmíhjólum. Það er að segja sérstök gúmmí pulsa sem er með einum eða tveimur vírum inn í til að strekkja gúmmíð utan um hjólið og ofan í u-skúffuna sem er úr járni og virkar eins og felgur nútímans. Reyndar er þessi lausn fyrstu felgurnar, eftir því sem vefsíðueigandi best veit. Gúmmí hjólinn komu til skjalannan eftir 1855 eða þar um bil. Charles Goodyear fann upp aðferð til að efnabreyta gúmmíinu til að nota það í dekk undir ökutæki af slysni. Goodyear fór í skuldafangelsi og dó öreigi meðan aðrir stórgræddu á uppfinningu hans.

Þessi bogi sem hér er búið að spengja er ein af skilgreiningum til nafns/gerðar vagnsins Phaeton. Þessi eða svipaður bogi finnst líka í ,,Viiktoriu vagninum.

Dálítið sérstakt að fremra sætið vísi farþegum aftur (snúa aftur). En hafa ber í huga að Phæton kom í mjög mörgum útgáfum og stundum er svolítið erfitt að skilgreina hverrar gerðar þeir eru.

Kúskurinn eða ökumaðurinn sat að öllum líkindum til vinstri héðan megin séð með taumana í hestinn. En það gæti líka verið að Kúskurinn sæti bara á hestinum og æki vagninum þannig; það var vel þekkt þó aðallega hjá aðlinum og kóngafólki. Setan eða sessan undir kúskinn var oftast hærri að aftan og myndaði þannig halla fram, líklega til að gefa betri líkamsstöðu til akstursins.

Járnverkið í handriðunum á sætinu segja vefsíðueiganda að sætið sé upprunalegt eða smíðað með vagninum. Littlu napparnir beggja megin á handriðunum segja það. En þeir (nabbarnir) eru til að krækja svuntu eða hlífðarteppi yfir Kúskinn.

Uppstig eru mjög mikilvæg, vegna þess að þau gerðu það að verkum að hægt var að byggja vagnanna hærra og hærra frá jörðu og komu sér vel þegar stóru póstvagnarnir komu til sögunar en það var snemma eða á 16 öldinni. Samt er frá því sagt í sumum lýsingum á vögnum að þeir væru hengdir lágt til að eldra fólk og konur ættu auðveldara með umgang. Uppstig á vögnum með yfirbyggingu sem var með hurðum var oft þannig að hlíf var látinn koma yfir þrepið/uppstigið þegar hurðinni/unum var lokað var hlíf yfir uppstiginu fest undir hurðina/hurðirnar sem hjálpaði til við að halda frá því miklum óhreinindum.

Lögunin á sætinu og brettinu er nokkuð einkennandi fyrir Phæton. Mjög oft var fellanlegur skermur/hlíf úr leðri eða öðrum efnum yfir sætinu og kallaðist (Hood) á ensku. Eining var Victorían með svipuðu lagi á afturhlutanum. Nafngiftin Viktoría er í höfuð Viktoríu drottningu Stóra Bretlands.

Við eru að horfa á fimmta hjólið, svo kallaða (the fifth wheel) með miðjubolta eða (King pin) á ensku. Þetta er eins og þið sjáið töluvert járnvirki og þurfti að vera það. Það voru dæmi um að vagnarnir væru liðstýrðir svona eins og Búkollur nútímans eða Pileloader. Sem sagt tengipinni/bolti í miðju farartækis eða framarlega og þá þurfti ekki fimmta hjólið. Sjá næstu mynd.

Tveir miðjuboltar rétt fyrir framan miðju Jafni Phæton, samhverfur Phæton eða miðju Phæton

Fimmta hjóls járnverkið séð framan á.

Samantekt af Friðrik Kjartansson Með innilegum þökkum til Þorkells Hjaltasonar fyrir lánið á myndunum.

Próförk: Þórhildur Daðadóttir